Skilmálar

Almennt
Pöntun er staðfest um leið og greiðsla hefur borist. Kaupanda er send staðfesting í tölvupósti.

Afhending pantana og sendingarkostnaður
Pantanir eru teknar til og afgreiddar eins fljótt og verða má. Hægt er að sækja pöntun eða fá sent gegn greiðslu. Vörur sem eru sendar með Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu á vörum. Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu. Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Pínupons ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Hægt er að sækja vörur á næsta pósthús/póstbox eða á afhendingastaði Dropp.

Við bjóðum líka upp á að sækja vörur í verslun MYRK STORE - Faxafen 10, 2.hæð. Vinsamlegast sækið ekki pantanir fyrr en þið hafið fengið tölvupóst um að pöntunin sé tilbúin til afhendingar. 

Greiðslur
Pínupons býður uppá greiðslu gegn millifærslu eða með debit- og kreditkortum í gegnum greiðslusíðu Borgunar. Greiðslur eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi Borgunar.

Ef greitt er með millifærslu fær viðskiptavinur upplýsingar með kennitölu og reikningsnúmeri Pínupons. Pöntun er staðfest um leið og millifærsla hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 24 tíma telst pöntun ógild. Best er að staðfesta millifærslu með því að senda kvittun úr heimbanka á pinupons@pinupons.is.

Millifærslu upplýsingar
Kt: 410222-0430
Rk: 0133-26-005367

Verð
24% VSK er innifalinn í verði vörunnar og reikningar eru gefnir út með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Pínupons sér rétt til að hætta við viðskipti vegna ranga verðupplýsinga í vefverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá Pínupons. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og hægt er. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru, nauðsynlegt er að varan sé ónotuð, í upprunalegum og óskemmdum umbúðum. Pínupons áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða endurgreiða vöru með afskriftum. Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Nauðsynlegt er að framvísa greiðslukvittun fyrir kaupum. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Pínupons til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sérmerktar vörur: Ekki er hægt að skila vörum sem eru sérmerktar. 
Ef gleymist að velja lit á stafi í sérmerkingum, áskilur Pínupons sér rétt á að velja þann kost sem þykir heppilegastur. 

Athugið að vörur sem eru keyptar á útsölu eða með 40% afslætti eða meira er ekki hægt að skila.

Ábyrgð
Notkun á leikföngum er á ábyrgð foreldra.

  

Persónuvernd
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Pínupons deilir ekki persónugreinanlegum gögnum til þriðja aðila.

Fyrirvari 
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.

 

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.